í bláum tónum samlit sjónum
eru fjöllin
fagurlega útskorin skuggamynd

í vestri

upplýst af bakgrunnslitum
úr báli
sem bara er hægt að lýsa með litum

og tónum

sú mynd er fegurri en fegursta
hugsun
sem flogið hefur um huga manns

án orða