ég vildi að þú
gætir heyrt
allar raddirnar sem rógbera mig…

ég vildi að þú
gætir séð
alla draugana sem dansa við mig…

ég vildi að þú
gætir snert
alla púkana sem pota í mig…

ég vildi að þú
gætir skilið
allar hugsanir sem hringla í mér…

ég vildi að þú
gætir skynjað
alla merkingu sem miðlast frá mér…

gegnum öll þessi ljóð…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.