Braut allar mínar tennur
Þegar ég datt á rörið
Blæddi um allt andlitið
Lá í roti, tvær sek..

Fór til tannlæknis
Sagði mér að ég burstaði ekki nógu vel.
Sýndi mér hvernig ég átti að bursta.
Svo lagaði hann tennurnar.

3000 krónur fyrir tannfræðslu
2500 krónur fyrir deyfingu
40.000 krónur fyrir að laga tennur.
2000 krónur fyrir að fá að borga fyrir þetta allt saman.

Braut svo aftur tennurnar
Og er nú tannlaus…