Súperman.

Kemur þreyttur úr vinnunni,
Erfiður dagur.
Hjálpaði konu úr brennandi húsi,
Búinn að rífa sjö skyrtur bara í dag.

Sest fyrir framan sjónvarpið
Glápir á imbann.
Fær sér bjór, og sígarettu
Þreyttur eftir erfiðan dag.