af tilefni 1.árs afmæli innrásarinnar í írak samdi ég nokkrar hækur en það er japanskt ljóðform en byggingin er 5 - 7 - 5. sjáumst í stríðinu.

rós lét undan
þungbærum skugga drekans
skýjin dökknuðu

þessa dimmu nótt
flæddi blóðið rúbinrautt
augun fylltust sorg

heimskir stjórna þeir
sem öllu virðast ráða
með kolsvört hjörtu

sturlunin algjör
tilgangsleysið ríkjandi
glataðar sálir

feður og mæður
syrgja sundurtætt börnin
sem hylja grundir

olían flæðir
loks yfir bakka sína
í átt til vesturs

örninn sköllótti
hreykinn flýgur fugla hæst
með blóðugan gogg

krossfestur jésús
vonlaus snýr krossinum við
hið illa sigra