Ég, undirrituð, mun berjast
með hnúum og hnefum
til síðasta blóðdropa
fyrir sjálfsvirðingu minni

og neita að vera höfð
að fíflinu
sem ég sé
að ég er að breytast í.