Við fórum til Heljar
þessa fordæmdu nótt,
við tvö.
Riðum græneygðu skrímslinu
um náttvegu
Niflheima.
Í kæfandi myrkrinu
sprungu þér út
blóðrósir á brjósti.

Ein sneri ég aftur,
alein.