kannski dó ég í gær
og kannski kemur vorið ekki aftur
og kannski læri ég aldrei
að skipta um dekk

ég veit ekki margt

þó veit ég fyrir víst
að það er snemma
morguns núna
og ég ligg í rúminu
mínu með köttinn
til fóta og hugsa um þig

það sem verða að teljast
heldur saurugar hugsani