Leikur að eldi, leikur að þér
ljúf er hefndin, komið að mér
eld-rauð af brygðum og bræði
bál-vond af öskrum og mæði.

Ég syrgi sjaldan öfugugga.
Sá ég út um eld-húsglugga
víta-verða heita kossa
vítiseld af ótryggð blossa

Leikur að eldi, leikur hjá mér
líflítið bálið í hjarta þér
heiftin horfin, sálin auða
hefni mín með eldi og dauða

-gættu vitna, vertu málvör-
Viðstaddur að eigin bálför
satan sjálfur holdi klæddur
sýnist vera logandi hræddur

Leikur að ösku, leikur að þér
líflaus er askan í hendi mér
því af sárum svikum illur geldur
-slokknaður okkar ástareldur-