Hamingjan situr heima í stofu og sötrar kók,
gluggar í blöðin og gefur mér hýrt augu - af og til,
í bleikum kjól og brosir út í annað.
Fer svo ljómandi vel við þennan stól.

Og verði hún hér ennþá á morgunn og hinn,
veit ég fyrir víst - að hún er hvorki frá Hong Kong né Singapúr
- heldur alveg ekta.