Ég gæti sagt þér:
að allt verði í lagi,
að þú verðir búinn
að gleyma þessu
á morgun,
að þetta sé ekkert svo slæmt,
að sársaukinn
brenni burt í draumunum
og allt verði gott.

Ég geri það ekki,
vil ekki ljúga að þér.
Get ekkert sagt,
get bara haldið þér
í fangi mínu,
strokið hár þitt
meðan þú grætur
og reynt að bera
byrðarnar með þér
- í þögn.