Dragðu mér draumstafi
drátthögum fingrum.

Málaðu orðmyndir
haustmjúkum litum.

Ristu mér svefnrúnir
rammar að afli.

Syngdu mér silkiljóð
svefnþungri röddu.