Ef ég gæti bara
skrifað ást okkar
minnisvarðann
sem hún verðskuldar.

Til þess þyrfti orð
úr marmara,
úr góðmálmum
og eðalsteinum.

Það þyrfti tíma,
til að fægja,
til að pússa
og gleyma
því sem skyldi.

Ég á engin slík orð
en tíminn er nægur.