Að fara yfir endimörk alheimsins
og hitta herra Guð,
er það kannski líkt því að hitta kennarann
eftir próf,
og fara saman yfir villurnar?

Skoða í ró og næði allt það rétta og það ranga.
Kannski er einkunnin góð
og við komumst áfram.

En ef einkunnin ekki fullnægjandi? Hvað þá?

Sendir hann okkur þá til baka,
aðra önn,
og veitir nýtt tækifæri á að taka prófið aftur?