Þegar ég hafði klætt mig í fötin
kyssti ég hann
þar sem hann lá í rúminu
,, Takk fyrir kvöldið,
þetta var æðislegt!"
sagði ég brosandi við hann
þar sem hann lá í rúminu
áður en ég stóð upp og fór.
Meðan brosið stirðnaði upp
á andliti mínu hugsaði ég til hans
þar sem hann lá í rúminu
og velti því fyrir mér
hvort hann hafi vitað eins og ég -
hve falskt brosið var.

Í ástríkum faðmi hans
uppgötvaði ég fyrir alvöru
hversu óendanlega einmana ég e