Með orðin að vopni.
Ætlast hann til að ég bugist og brotni?
Sjái eftir því sem ég get ekki gert?
Sjái eftir því sem ég veit að er rétt?

Æjji veistu vinur ég held bara ekki,
vorkunsemin hún virkar ekki.
Vællinn og skællin þett´er allt bara feik,
þú snýrð öllu upp í einhvern sjúklegan leik.

Ég neita að vera þessi meðvirka kona:
Æji aumingja greyið mitt, svona svona.
Ég neita að vera heims þíns volæðishlíf,
svo góði drattastu út og eignastu líf!