ég bað til guðs
um betri tíð
með blóm í haga

ég bað til guðs
um frið og ró
og frjálsan aga

ég bað til guðs
um gilda vasa
og góða daga

ég bað til guðs
að lækna sár
og svanga maga

ég bað til guðs
og svarið var
“það er enginn notandi
með þetta símanúmer”