Vertu skáld mitt
og færðu mér ljóð þín
hlaðin
seiðandi eldi.

Vefðu mér ljóðvef
úr heitum nóttum
& tindrandi augum,
saltmjúkum kossum
& hrímhvítri húð.

Sláðu draumvoð þína
morgunrjóðri ástúð,
fölgulri vináttu
og silfursprengdri virðingu.

En íþyngdu mér aldrei
með eldrauðri ást þinni,
hún gæti brotið
vængi mína
og bundið mig jörðinni.