Var bara að gera þetta ljóð. Lá uppi í rúmi með kettinum mínum og fékk allt í einu þessa paranoid tilfinningu að hann væri að bíða eftir því að ég myndi sofna svo hann gæti ráðist á mig heheh… ég veit… en alla veganna, lesið: gagnrýnið eða lofið!

Kötturinn

Ég lít í augu hans
og sé að hann er æstur, reiður:
leiður á einræði mínu
Hatur í augum hans
ég yrði reiður ef ég fengi sama matinn dag eftir dag
leiður á tilbreytingarleysinu
Hann liggur í rúminu
bíður eftir tækifærinu til að fá útrás
leiður á skipunum mínum
Hatur í augum hans
ég yrði reiður ef ég yrði geldur
leiður á getuleysinu
Virðist svo hræddur
hræddur við að stíga skrefið
skrefið til frelsunar

Nóttin í nótt er nóttin sem hann mótar landslag andlits míns upp á nýtt meðan ég sef svefn hinna dæmdu.
______________