Hvítir, næstum glansandi,
liggja svo naktir til þerris

Hvernig skyldi þeim líða,
skelflettum og fótalausum ?

Kaldir, nýkomnir úr frysti.
Hlýtur að vera heimilislegt,
svo kalt í sjónum.

Pota, velti, klíp og kreisti.
Ekki eitt hljóð, ekki stuna, finnið ekki neitt,
auðvitað, vantar á ykkur höfuðið.

Vesælir núna, bráðum að súpu.
Bragðgóðir.