Þú snertir mig svo óendanlega blítt, eins og þú værir hræddur um að ég brotnaði, eða gufaði upp. Fingur þínir er struku létt yfir hár mitt voru sem hægur andvari á heitum sumardegi; svo mildir, svo blíðir og ljúfir.
Þú elskaðir mig þá nótt, eins og enginn hafði gert áður og enginn mun nokkurn tímann gera aftur. Þú sagðir það ekki með orðum, en ég fann að þú elskaðir mig þá nótt.
En við vitum bæði að þessi nótt var sérstök; hún var einstök og hún kemur aldrei aftur, og aldrei önnur eins.