Að mæta dansandi augum þínum,
fullum af örsmáum álfum
sem glotta skelmislega
og reka út úr sér tunguna,
það brýtur alltaf
brynjuna mína
og ég hlæ
þar til ég græt.

Þannig er hægt að hlæja
með þér.