Bros

Bros lítils ungbarns
fær þig til að endurskoða lífið.
Þér finnst lífið stundum einskisvirði
en þú verður að muna að ekkert er einskis virði.

Bros sex ára engils
fær þig til að þrá lífið.
Þér finnst það vera eitthvað annað
þetta eitthvað sem snertir innstu hjartarætur.

Bros tólf ára villings
fær þig til að langa á ný.
Þér finnst þessi villingur vera þú
en hugsar þó að þú hafir aldrei verið svona slæm.

Bros átján ára unglings
fær þig að þrá að vera ungur á ný.
Þig langar að þrá og finna allt á ný
en týnd æskan mun aldrei koma aftur.

Bros tuttugu og fjögura ára einstaklings
fær þig til að horfa í átt að því liðna.
Þér finnst þú hafa gert allt sem þú hefðir getað gert
en nú leggstu í hinsta sinn og sefur vært.

Þú vaknar ei meir
en bros minningana munu ætíð lifa.
Brosað í hinsta sinn og hlegið
minningar eru af hinu góða.