Neisti, losti, blóðið brennur,
kveikir í mér, hugur rennur-
í áttina til þín; nakinn, sveittur
þú veist ei hvað það er, að vera þreyttur.
Leiktu við mig, áfram svona
ég veit hvað það er að vera kona.
Veistu hvernig á því stendur,
að þú verður alltaf, alltaf brenndur?
Af því það er alltaf einmitt svona,
é'r að fara; en þú varst að koma.