Næturdrottning
með eldblóm í hári,
norðurljós í augum.

Söngvar þínir stjörnur
í hylsvörtu tóminu
sem umlykur okkur.