Út úr myrkrinu kem ég,
ríðandi sægrænum hesti.
Í herklæðum er ég
og með höfuðdjásn.

Systir kær, ég er farinn
frá niðdimmum botni sjávar
þar sem nóttin hefur klætt þig
og kysst þín brostnu augu.

Þegar við kvöddumst
var líkami þinn rauður;
litaður af öllum þínum tárum
og hafið grét með þér.

Far vel, ó systir, far vel,
þú ert horfin í djúpið mikla,
vindar fortíðar blása
og syngja um liðinn heim.

Nú set ég á mig vængi
og flýg í átt til sólar
þar sem englar eru allsstaðar
og þar sem þú varst aldrei til.