Ég særi þig nú
til að bjarga þér síðar.
Dag einn muntu sjá
hversu satt það er.

En aldrei
máist mynd þín
úr hjarta mér
og sársauki þinn
sker einnig mig.

Ég særi þig nú
til að bjarga okkur báðum.
Dag einn muntu sjá
hversu satt það er.