Kaupfélagið heima
var ógnvænlega stórt,
heill heimur
af eftirsóttum vörum.
Litla stelpan
sem missti sjónar
á mömmu sinni
hélt aftur af tárunum
með herkjum
og óttaðist það mest
að þurfa að ráfa
milli rekkanna
um eilífð
og mamman
myndi bara hverfa,
rétt sisvona.

Ég er enn sama stelpan
en kaupfélagið
hefur hins vegar minnkað
og búið að opna
Bónusverslun
hinum megin götunnar.