Tíminn er aðeins endalaus röð augnablika,
sem líða hjá hvert af öðru.
Lítil veröld greipt í hvert og eitt
- handa þér.

……

Tíminn er líkt og tár sem falla,
tala heit og sölt um gleði og sorgir.
Á einu augabragði verða til og hverfa,
minningin ein verður eftir.

……

Tíminn er gjöf guðs til mannanna.
Lifandi sál í kviku holdi,
- sólundaðu ekki gjöf þinni.

……

Tíminn er gjöf guðs til mannanna
- en skyldi hann ekki óska þess
að hafa gefið hana einhverjum öðrum.