Enn eruð þið mættir báðir tveir,
bræðurnir ótti og kvíði.

Komið í hvert sinn sem ég vil hleypa inn
ofurlítilli hamingju sem bankar á dyrnar.

Hangið í pilsfaldi hennar hvert sem hún fer.

Hlustið hvað ég segi, þið eruð ekki velkomnir.
Farið burt, komið ekki aftur.