Eyðing og upplausn
um heiminn í heild;
blóð saklausra barnanna
rennur út
í tárahafið,
ragnarök hefjast.
Sú veröld
sem við þekkjum
verður aldrei meir:
allt sem er
verður eitthvað annað,
og þeir sem halda velli
verða aldrei samir.