mig langaði að semja ljóð handa vinkonu,
vilduð þið vera svo væn að fara yfir það fyrir mig?
gangrýni.. endilega. Ég er ekki skáld. Bara langaði að skrifa.
Þið vitið meir um þetta en ég.

Dagurinn dimmur var,
Dimmur,hún ekki var þar.
einmannaleikinn nísti,
Og tönnunum gnísti,
Ég spurði,en fékk ekkert svar.

Að eilífu á hún stað í mínu hjarta,
Það hjarta, sem mun án þess að kvarta,
Syngja til hennar lag,
Og um hvern dýrðar dag,
Lifir sú minningin bjarta.

Án hennar er hver dagur eins,
Alveg eins og ekki til neins
Það er enginn munur,
En að mér læðist sá grunur
að hjarta mitt kenni sér meins.

Þann dimma daginn hún hvarf,
En eitt ég segj’enni þarf,
Að vera hún sjálf,
þótt veröldin hálf,
skilj’eftir sig annan arf.

En hver þarf að hugsa um sig,
Hugsa um sig, en ekki um mig,
En ástin er mikilsverð,
Og orð eru máttugri en sverð.
Veistu: mér þykir vænt um þig.

tilfinning söknuðar slík,
sú tilfinning í mér er rík
um það vil ei þegja,
og verð henni að segja:
að hún er ein allsherjar tík.*

Allt sem ég vildi var svar,
En svarið það var ekki þar,
Ég tönnunum gnísti,
og í þeim tísti,
það mun allt verða áður sem var.


takk fyrir,
Rut

* ekki taka orðið tík þarna eitthvað alvarlega, það er bara starfsheiti í einu af okkar tómstundagamani.