14. júní '99
Græn víðátta
sem bylgjast út í fjarskann,
hvít ský
sem renna sér niður
bláar fjallshlíðarnar,
gul sól
sem smellir geislakossum á
rauð hjörtun.