Lausnin í sjónmáli, ég fálma út í loftið,
rekst á þunnan glervegg rétt á miðri leið.
Hann er aðeins of hár til að ég þori að klifra yfir.

Lausnin, rétt handan við örlítinn vegg,
ég þor'ekki yfir, kemst ekki undir;
og ef ég brýt hann…
…gæti fólkið sem gengur á eftir mér skorið sig á fótunum.