Ég missti allt of mikið,
ég gaf þér of margt.
Ég fékk aldregi skilið
þá forhertu sál.

Af augum mínum
hrutu perlutár
en þeim var kastað
fyrir svín.

Hugur þinn í ræsinu,
hjartað víðs fjarri.
Þú gast aldrei meðtekið
þá ást sem ég bauð.

Bitur og gröm er
ég bundin við þig;
bar'að ég gæti
mig losað.

Því vil ég hripa
þér hinstu kveðju
og hreinsast af þér
- að fullu.