Í tindrandi ljósadýrð morgunroðans
Sé ég daginn færa sig fram
-Fet fyrir fet.-
fífillinn breiðir út blöðin sín,
teygir sig skjálfandi af ákefð
og gleði mót nýjum degi.

Sólskríkjan situr á steini
Og syngur af öllum mætti
-lofandi Guð-
Þakklát af öllu hjarta
Og gleðin er stór
Fyrir enn einn töfrandi dag

Hvert andartak dagsins
Skal notast sem gjöf
-til allra-
því tíminn er talinn og veginn
og skoðaður vel
og fyrr en við vitum ,liðinn