Bóíng 757 hefur saumaskapinn
hún þræðir hvítan þráð sinn
á milli hnoðranna
og saumar þá saman
á bláan dúkinn
en svo rakna þeir upp
undir rjóðri sól
rjúka burt
og farþegarnir fá morgunkaffið.
—–