líf mitt í molum,
sálin komin í graut,
rökhugsunin fokin út um gluggann.

Hvað er í gangi,
hvað er ég að gera,
af hverju er ég sofandi?

sef allt í burtu,
erfiðleikann og myrkrið,
læt það bitna á öllum öðrum.

að fynna til,
að hata,
að vilja bara sofa allt í burtu.

Búið að gefast upp
á dimmunni, myrkrinu, mér.
Vil bara sofa.

er til fyrirgefning?
Fyrir það sem ég hef gert?

ég svaf…. og vildi aldrei vakna aftur.

ER MIG ENNÞÁ AÐ DREYMA?

STEINUNN MONGÓ!