Meira væl! oh, well…

***

Að horfa á eftir vini
deyja snemma
verra en flest

að vita ekki hvort það var
ætlun
eða bara slys

glaður, drukkinn, dáinn
grafinn
horfinn langt í burt

marið auga, frosið enni,
hrímkalt hár,
-hinsti koss

aldrei gleymist feimið bros,
ískalt glott,
feigur vin
"