Það kostaði aðeins þrjú orð
og endurvarp hafsins,
stjörnurblik í mjúku flaueli.

Það kostaði aðeins þrjú orð
og fasta jörð,
aðdráttarafl sterkra arma.

Það kostaði aðeins þrjú orð
og himintunglin,
lokkandi fyrirheit örlaganna.

Það kostaði mig frelsið
að gefa þér hjarta mitt,
og ég er hrædd.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.