Sendum börnin okkar í stríð, svo við getum horft með stolti á litlar myndir í
gylltum römmum og hugsað til hugaðra hermanna sem beina
byssuhlaupum skammarlaust að höfðum annarra barna, barna sem eru
ekki eins huguð og okkar börn, barna sem aldrei gengu í skóla, barna sem
koma okkur ekki við,

sendum börnin okkar yfir hafið, svo við getum hugsað fallega til þeirra þar
sem þau fljúga yfir smáþorpin og færa þeim gjafir, litla pakka sem springa,
en auðvitað varpa þau matarpökkum á eftir,

sendum börnum þriðja heimsins börnin okkar að leika sér við í byssó, ekki
getum við unað við það að vesalings börnin hafi engan að leika sér við,
svo við sendum börnin okkar og þau geta haft ofan af fyrir þeim, við
sendum þau meira að segja með eigin byssur, ef ske kynni að fátæku
börnin eigi engin leikföng,

sendum flugvélar yfir hafið, fullar af sprengjum, hugsum okkur svo hvað
sprengjuregnið á eftir að lýsa eyðimerkurhimininn fallega upp, alveg eins
og á gamlárskvöld, hugsið ykkur alla litina, alveg eins og á gamlárskvöld,

sendum börnin okkar í stríð, því hlutleysi er fyrir hugleysingja, og við
þurfum að sýna hvað við erum huguð með því að senda börnin okkar í
austur, svo þau geti siðað villimennina sem ógna okkur með háttum sínum
til, því við getum ekki unað við siði sandnegra með dökkt hörund og olíu í
hárinu, svo við sendum börnin okkar til að fá þau ofan af villutrú sinni og
olíu,

sendum börnin okkar í stríð, sendum börnum þriðja heimsins börnin okkar
svo mannfallið sé jafnt, við drepum börnin þeirra, leyfum þeim að verja sig,

sendum börnum olíunnar leikföng, sendum þeim skammbyssur og
handsprengjur, svo þau geti leikið sér við börnin okkar, höfum leikana
jafna,

sendum heri okkar yfir hnöttinn þveran og murrkum lífið úr ómenntuðum,
ósiðmenntuðum olíufurstum, svo þeir ógni ekki öryggi olíufélaganna,
fljúgum yfir hafið og vörpum sprengjum og matarpökkum, sprengjum húsin
en fæðum fólkið, brennum olíuna svo verðið hækki, sprengjum fólkið en
fæðum okkur sjálf,


leyfum þeim að senda fullorðna fólkið til orrustu, leyfum þeim að myrða
börn olíufustanna, leyfum þeim að sprengja þriðja heims ríki aftur til
steinaldar og breyta því í sjötta heims ríki, leyfum þeim að nauðga
konunum og drepa mennina, leyfum þeim að eyðileggja efnahaginn, stela
olíunni og skilja landið eftir í sárum, leyfum þeim að varpa þúsundum
sprengja, án nokkurra áhyggja af því hvar þær hafni,

leyfum þeim bara að fara í stríð,

en ekki í okkar nafni!



————————————-



Ekki láta ríkisstjórnina komast upp með að leggja okkar nafn við ólöglegt
árásarstríð í Írak að okkur forspurðum! Við erum stærri þjóð en svo að tveir
menn geti ráðið svona yfir okkur. Ekki sitja aðgerðalaus á meðan traðkað
er á rétti okkar!!
Berjumst fyrir rétti okkar, og fyrir friði!
Kveðjur!
Eyvindur Karlsson
We're chained to the world and we all gotta pull!