Ef ég aðeins gæti sagt þér,
hvernig hjartað færist til.
Ef ég aðeins gæti leyft þér,
að finna í mínu brjósti yl.
Ef ég aðeins gæti sýnt þér,
hve fallegt það er að vera til.
Ef ég aðeins gefið gæti
þér alla mína barna kæti
ef ég eitthvað líf þitt bæti,
leyfðu okkur- að vera til