Ég var að skutla aldraðri ömmu minni á sunnudaginn og hún byrjaði að þusa um hversu siðferðislítið fólk væri hér nú til dags, allir svæfu hjá öllum og börnin spryttu upp eins og arfi. Við það datt mér þessi staka í hug:

Börnin mín og börnin þín
auk barnanna okkar beggja
öll skulum við kúldrast hér
milli fjögura veggja.