Mjúklega færði hann
sér nær,
svo nálægt
að hann fann fyrir
síðum lokkunum
og hlýju skegginu
lyktin var góð
andrúmsloftið rafmagnað
þeir horfðust í augu
kossinn var staðreynd

þetta hefði getað
endað öðruvísi
ef að helvítis rómverjarnir
hefðu ekki beðið átektar.