meðgangan var yndisleg
eins og margir vita
en ég var nú dáltið barnaleg
og var alltaf að lita


fæðingin var ekkert spes
á þann páskadag
ekkert nema tómt ves
ég man það enn í dag


tekinn með klukku
komst hann í heiminn
vakti mikla lukku
og var alls ekkert feiminn


hann var með mikið hár
æðislega sætur
ofsalega klár
svaf allar nætur


fyrst drakk hann bara mjólk
nú borðar hann kjöt og fisk
eins og venjulegt fólk
sem notar venjulegan disk


nú er hann kominn með tennur
stóri strákurinn
hann gerir alls konar glennur
blessaður mathákurinn


hann stækkar bara og stækkar
en minnkar ekki neitt
en hárunum fækkar
hverfa eitt og eitt


en nú er þetta búið
allavega í bili
orðið frekar snúið
það rímar ekkert við “bili”



GIZ ;o)