ÁSTARLJÓÐ

Á er fyrir ástarorð, hvísluð við mitt eyra
S er fyrir svarið sem þú aldrei fékkst að heyra
T er fyrir tárin sem féllu af okkar hvörmum
A er fyrir algleymið í þínum sterku örmum
R er fyrir roðann sem á þinn vanga rann
L er fyrir logann sem í augum þínum brann
J er fyrir jörðina sem skókst við okkar beð
Ó er fyrir óskina um orð sem byrja á eð
Ð af þekktum ástæðum fær ekki að vera með

Aðfaranótt 1. nóv. 2002.