Lítil stúlka
með höfrunga
í augunum
og sól
í hárinu

leikur
á róló
grandalaus

maður
með mölflugur
í skegginu
og hrafna
í augunum

ginnir
litla
skellibjöllu

og höfrungarnir
þagna
og synda
á brott