Litbolti Nýju vForce grímurnar frá Diablo eru með “optically correct lenses”. Það þýðir að linsan er í jafnri fjarlægð frá augunum, sama í hvaða átt horft er. Ef þetta er ekki verður ljósbrot í linsunni, eins og maður sér þegar maður horfir í gegnum vatn, manni sýnist allt bogna við yfirborðið. vForce eru einu grímurnar á markaðnum með þessu. Hér er Morph gríman í “Gun Metal” lit með glærri linsu.