Þá fer að styttast í það að ég fái mér loksins “merkjara”.

Ég er örlítið veikur fyrir Smart Parts aðallega vegna þess að ég átti góð kynni af slíkri byssu fyrir mörgum, mörgum árum. Svo kann ég betur við að hafa byssuna einfalda og grófgerða, en ekki með eitthvað geimveru-look og króm.

Síðan ég var síðast í litbolta af ráði hefur eflaust orðið mikil þróun og mig langar að mjólka sérfræðingana á spjallinu um hvað eru sniðugustu kaupin.

Þetta yrði merkjari sem er ekki alltof ódýr, en ekki heldur í formúgu-flokki. Hafði vonast til að geta haldið mér í 40-60 þús kr bilinu.

Svo eru það auðvitað kútarnir og grímurnar. Hvað er það sniðugasta í dag?