Sælir/sælar ;-)

Nú er verið að stofna nýtt litboltafélag í Skagafirði, ásamt því að verið að hanna og búa til nýjan og glæsilegan völl í Varmahlíð.

Ekki ennþá er búið að opna völlinn, en það gerist á fyrstu vikum mai mánaðar, og þá á svipuðum tíma fer í loftið vefsíða vallarins.

Þetta er fyrirtæki er undirdeild undir Ævintýraferðir í Skagafirði, sem kannski sumir kannast við sem brautriðjandi fyrirtæki í flúðasiglingum á Íslandi, svo um að gera fyrir alla adrenalín-fíkla að hópa sig saman í raft og paintball í sumar!!
Nánari upplýsingar á
www.rafting.is

Bætt við 1. maí 2008 - 12:50
Rétt þykir að bæta við, að völlurinn er staðsettur á Vindheimamelum, Skagafirði.
Þetta verður stór og myndarlegur völlur, sem ætti að geta tekið á móti ca 40 manna hópum í einu.
<–Drezi–>